laugardagur, janúar 07, 2012

 

Nýtt ár = nýtt líf?

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Ferlegt hvað ég hef verið ódugleg að koma með myndir hingað inn, mömmu minni til mikilla ama. En nú vona ég bara að Timme fari aðeins oftar út á kvöldin, hvort sem er að horfa á fótbolta eða fara til Kýpur... Svo ég hafi nú einhvern tíma fyrir sjálfa mig.


En hvað um það, heilmikið búið að gerast...

Fyrst; við fórum til Íslands og héldum upp á afmæli hans Alfreðs (myndirnar enn í myndavélinni) og var bara meiriháttar að koma á klakann. Fann fyrir í fyrsta skipti (eða fyrsta skipti sem ég viðurkenni) að ég er með heilmikla heimþrá og var fyrsti dagurinn eftir heimkomu ótrúlega erfiður...

En svona er það.. við fluttum þann 16. des (eða ætti ég að segja ég) því í raun kom Timmi lítið við sögu í flutningunum, nema jú að borga. En það þarf víst líka ;) en ég pakkaði öllu og flutti ásamt 3 mönnum og lyftu. Tók bara 10 tíma..
Bættist einnig við að Alfreð var veikur, en hann greindist með bronchitist um kvöldið sama dag og við fluttum. En þá drattaðist ég loks með hann til læknis eftir 3ja daginn með yfir 40°C hita, fékk hann loftúða og gott hitalækkandi lyf. Svo fékk hann loftúða í nokkra daga á eftir og var fljótur að braggast aftur.
Hann er bara algjör rúsína, brosir svo mikið og er ótrúlega kátur, hann skríður bara um enn sem komið er, en gengur með. Lætur vita með miklum ákafa ef hann vill eitthvað eða líkar ekki eitthvað.

Írena var MJÖG ánægð með að fluttningana, tala nú ekki um nýja herbergið og sagði stolt við ömmur sínar að hún væri komin í nýtt herbergi, ég er líka súper ánægð og Timme einnig, þannig hér er eintóm hamingja ;)
En bara það, t.d að koma með tvö sofandi börn seint á föstudagskveldi, leggja fyrir framan húsið og bera eitt barn inn í einu. Í stað þess að leita eftir stæði í 15 mín, ganga með bæði börnin í 5 mín og upp stiga og alles.. svooooooooooooooooooooo ljúft að það er ekki hægt að lýsa því.

Við erum samt enn bara í að koma okkur fyrir þó það mesta sé búið, þökk sé mömmu minni og pabba, en þau hjálpuðu heilmikið þegar þau komu hingað yfir jólin, bæði við að þrífa, dytta að hinum ýmsu hlutum og taka upp úr kössum, en það er þessi fínpússing sem er eftir, sem ég mun dunda mér að.


Myndir af húsinu koma seinna, en ég fer í að sortera myndirnar mínar og koma með fyrir og eftir myndir, því við gerðum nokkrar breytingar.

Hvað meira, við erum að hugsa að fara til Egyptalands í vetrarfrí. Okkur langar í sól, en hér er búið að rigna mikið og ekki hundi úti sígandi, slíkt skítaveður er úti (eða svona næstum því, allavega á belgíska vísu)


.. en þar til næst
Posted by Picasa

|

miðvikudagur, október 12, 2011

 

Hitt og þetta

Góða kvöldið gott fólk. Er ekki alveg nógu dugleg að setja nýjar myndir inn á tölvuna mína en þetta hlýtur að fara koma hjá mér...
Ég hef fengið 3 atvinnutilboð á sl. 4 dögum íhaaa. Mér til mikillar gleði var það fyrst allt of langt í burtu og ég gat því leyft mér að segja nei. Nei ég ætla ekki að fara keyra 115km aðra leið til að mæta í vinnu. Fegin spyrja margir mig kannski? Er ég ekki búin að vera bíða eftir að fara vinna, jú að mörgu leyti. En að fara vinna á frönsku er ekki beint mitt þægindasvið og ekki spurning auðvitað mun ég drífa mig í og dempa mér í óvissuna (ekki eins og ég hafi ekki gert það áður) en þetta tekur allt tíma. Einnig er gott að vita að því ég ÞARF ekki að segja já við því fyrst sem býðst.. Meira segja Timme sagði það við mig í kvöld og þá er nú mikið sagt.



En Alfreð litli er bara algjör perla, konan á dagheimilinu hans óskar mér góðs gengis þegar ég sækji hann. Já hún er sko heldur betur búin að spotta út karekterinn hans. Hann er voðalega ljúfur þegar hann er góður, en á hinn boginn er hann alveg ótrúlega krefjandi þegar hann tekur sig til (auðvitað eins og öll börn). Hann er bara með svo sterkan vilja á það sem hann vill, sem ég reyndar sá 2ja daga gamall á sjúkrahúsinu og það er svooo erfitt að róa hann niður. Úff ef ég er ekki orðin sköllótt við að rífa á mér hárið þegar ég er að díla við hann.






Smá myndasería af drengnum. Drengurinn ekki par hrifinn af því að mamma væri að taka svona margar myndir af honum..
Posted by Picasa

|

föstudagur, september 30, 2011

 

Síðsumar

1. október á morgun, jahérna hér....

En við höfum haft sumarið hjá okkur núna sl. viku, yfir 25stiga hiti alla vikuna og mun vera um helgina líka, en svo á að kólna eitthvað aftur. Sem er líka allt í lagi, því ég þarf að fara pakka og fleira. Jams bankinn er búinn að segja já, verður skrifað undir lánið á þriðjudag og svo já veit ég ekki alveg framhaldið. En það er byrjað á endurbætum í húsinu og ætlum við að taka niður vegginn í eldhúsinu og rífa út eldhúsinnréttinguna (sem er búið að gera) Þetta verður svooooooo mikil snilld að ég get vart beðið.


En Alfreð er algjört snilld og svo mikil dúlla, hann er farinn að toga sig upp, fer þó aðallega upp á hnéin þessi elska, hann sest ekki upp sjálfur en er rétt byrjaður að fara niður sjálfur úr sitjandi stöðu, sem sagt ekki detta niður. Já þetta kemur allt hjá litla gutta.

Hann fór annars í skoðun fyrir 2vikum síðan, og er hann orðinn 74cm og nær 9,7kg. Hann þyngist hægt núna. Ef ég man rétt er það hálft kg á sl. 4 mánuðum. Þær á dagheimilinu "eeeelsk'ann" Hann er bara svo mikil dúlla, alltaf brosandi og góður, nema þegar hann er pirraður sem er nær aldrei. Þær segja að hann vilji bara vera með stóru börnunum og þar unir hann sér vel. Fer út um allt þar til að kanna heiminn og er snöggur að koma sér á milli. Hann er strax kominn með það að "flýja" í burtu þegar hann veit að maður er að koma sækja hann, bara sætt. Hvað fleira já, svo er 4. tönnin hans að koma niður núna.
Írena er alltaf að verða betri og betri í frönskunni og fer ég að læra réttan framburð á orðum frá henni, leiðréttir framburð minn á nöfnum vinkvenna hennar. Gæti verið að það sé frá leikskólanum þar sem verið er að kenna henni rétta áherslu í orðum . "Nei!, hún heitir Kam-illa", " Já, Ka-milla" .. fyndið.
Hún unir sér voðalega vel inni í herberginu sínu og lokar þau Alfreð þar inni og honum finnst sko ekki slæmt að vera inni hjá stóru systu þar sem fullt fullt er að "nýjum" leikföngum. Það heyrist ekki í þeim.







Ég er að fara kenna núna á sunnudag í ísl. skólanum og verð með alla 5 ára krakkana, já þau eru bara nokkuð "mörg" og held ég að það séu 7 krakkar öll fædd á sama árinu. En þetta verður voða spennandi að sjá hvernig gengur. Er ég búin að plana kennsluna þannig að það verður farið í kynningarleik svo börnin þekki hvert annað. (Held þó að þau þekkist flest frá síðasta ári) en hvað um það, svo ætla ég að fara í stafrófið og ath. hvar þau standa sig þar. Svo verða ísl. lög tekin fyrir og svo eitthvað meira sem ég er ekki alveg búin að ákveða.


Stefnan er svo að koma til Íslands 17.-22. nóv og halda upp á afmæli hans Alfreðs og kannski míns ;) en ég nenni eiginlega ekki að vera lengur en bara langa helgi. Já svo langar mig til að halda jólin hér í Brussel.

Knús
Posted by Picasa

|

miðvikudagur, september 14, 2011

 

Nýjar / gamlar fréttir

Rosalega langt síðan ég hef skrifað síðast, enda líka búin að vera á þvælingi nær allan ágúst, fyrst til Danmerkur og svo til Íslands. Svo hefur maður bara að vera koma sér í þessa venjulegu rútinu eftir sumarfrí. Undirbúa skóla fyrir Írenu koma Alfreð á "creche" en hann byrjaði í síðustu viku þessi litla elska og verður 3 sinnum í viku. Þriðju-, miðviku- og fimmtudaga. Á meðan mun ég vera á frönskunámskeiði og stunda sjálfboðaliðsstarfið enn sem komið er. Eitthvað er einnig á dagskrá að ég muni kenna í íslensku skólanum OG fá laun fyrir. júhúuu.. Svo er spurning um að ég fái vinnu sem "Dame de compagnie" en það er ekki enn komið í ljós.


Írena er bara ofboðslega sátt, er mjög sátt við leikskólann sinn, og á hinar og þessar vinkonur og á ekki í vandræðum með að vingast við stúlkur hér og þar. Einnig er hún byrjuð í ballet aftur, en er ekki alveg sátt við að vera komin með nýjan kennara.
Ég er byrjuð að nota límmiðakerfið á hana, og fær hún miða ef hún hefur tekið til í herberginu sínu, klædd sig sjálf á morgnanna. Fleiri atriði eru ekki komin á blað, en í staðin mun hún fá sundferð eða í boltalandsferð eða eitthvað annað skemmtilegt um helgar. Finnst það alveg frábært og hún er mjög ánægð með að geta sett límmiðann á blaðið.


Af mér er bara fínt að frétta, er byrjuð á FULLU í ræktinni, fer a.m.k. 3 sinnum í viku, hvort sem það er að fara skokka, CrossFit eða sund. Einnig er ég loksins farin að leita mér að hjóli og ætla mér að hjóla um borgina í stað þess að ganga. Ég hitti sála hér 1 sinni í viku bara til að halda mér gangandi, enda er það ekkert grín að vera "atvinnulaus" í eitt og hálft ár og á nýjum stað með nýtt tungumál. Þannig ég er bara á fullu að vínna í mér, finna út hvað það er sem hefur verið að pirrar mig svona óskaplega, standa og halda markmiðum mínum, þannig ég er komin með fulltime dagskrá svo dagarnir flosni ekki upp í ekki neitt og ég er bara standa mig mjög vel;)


Af Timme er það að frétta að það er alltaf nóg að gera í vinnunni og eiginlega of mikið og ætlar hann sér allt of margt á allt of stuttum tíma. Hann skaddaði svo á sér fótinn við keppni í boltanum og fór í gips í nær viku og haltrar um núna. Fór svo í vinnuferð í morgun og verður fram á föstudagskvöld. En hvað svo meir; hann er búinn að skrá sig á íslensku námskeið, jebbs hann lét sig loksins hafa það, fer þó í level 2 þar sem of fáir voru skráðir í 1. En ég held að hann sé alveg með skilning á við level 2.
Ég mun þó ekki halda áfram í dönskunni, þar sem tímasetningin var ekki hagkvæm að mínu mati.



Hvað fleira, við munum að öllu líkundum skrifa undir kaupsamning á nýja húsinu þann 26.sept. Höfum við verið að skoða eldhús og erum búin að teikna og velja eldhústæki. Jams þegar maður er með kraftmikinn mann sér við hlið er sko ekki dvalið við hlutina, (nema þegar kemur af því að ÉG eigi að eyða peningunum..)

En hvað um það, ég er sátt við sjálfa mig ;)

Posted by Picasa

|

miðvikudagur, júlí 27, 2011

 

Sumarfrí

Fórum í viku ferðalag til Frakklands, nánar tiltekið til Concourans í Loire héraðinu, með fjölskyldu Timma og vinafólki þeirra, vorum 13 börn og 17 fullorðin. Börnin á aldrinum 3ja mánaðaða til 7 ára. Keyrðum við þangað í 7 tíma og dvöldum í kastala. Svaka flott, með sundlaug, risa stórum garð og nóg af aktivitý í kring. Því miður var veðrið ekki með okkur eins og reyndar veðrið hér í Brussel. Júlí mánuður hér er víst sá kaldasti síðan mælingar hófust. Brrrr.....

En hvað um það, við höldum sumarfríi áfram, keyrum til Danmerkur í næstu viku og dveljum þar í nokkra daga og svo verður haldið til Íslands þann 7.ágúst til 22. Reyndar fer Timme aðeins fyrr heim, en það er í lagi. Hann þarf líka að keyra til baka. Meðan ég og börnin fljúgum beint til Brussel.


Það er annars nóg að gera, við ætlum að skipta út eldhúsinu og baðherberginu hjá okkur og nú er ég að skoða og spekúlera hvernig eigi að hafa hlutina, hvaða flísar. Timme dreymir reyndar um marmara inn á baðið.... en hvaða ljós o.s.frv. já það er sko nóg að spekulera í. Timme sér um stærstan partinn á eldhúsinu, enda hefur hann reynslu í því, meðan ég kem með athugasemdir við misgóðar undirtektir.


Alfreð skottuling er byrjaður að skríða, eða svona toga sig áfram á gólfinu, engin fleygiferð á kallinum ennþá en það verður ekki langt í að við þurfum að fjarlægja CD diskana og eflaust einhverjar bækur, því þessi forvitni gutti lætur sko ekkert ósnert...

|

fimmtudagur, júlí 07, 2011

 

Sumarfrí á næsta leiti

Ekki það að ég er eiginlega alltaf í sumarfríi. Allavega er enginn skóli og engin vinna hjá mér núna. Nú stunda ég bara gólf ca. 2x í viku. Hef ekkert gert í Crossfit eins og er, en við Timme höfum verið að taka námskeið í gólfi og þetta er bara nokkuð gaman, sérstaklega þegar maður getur slegið í kúluna. Býst við að við Timme munum halda áfram að stunda þessa íþrótt svona einu sinni í viku. Þetta er svona liður í því að gera eitthvað saman ;)


Annað sem við ætlum að gera saman að það er að drekka ekki neitt áfengi í heila viku! Já ég segi ykkur satt, einnig ekkert sælgæti og ekkert brauð. Þetta er líður í því að okkur finnst við vera fitna aðeins of mikið fyrir okkar smekk og ætlum við að byrja í fyrramálið, því Timme er úti með vinnunni sinni í kvöld.


Hvað meira, Húnbógi og co voru hér í vikunni, fóru í morgun og já það er friður á heimilinu en líka tómlegt, einnig þar sem Ásta au-pair er farin heim.. Annars var bara ljómandi fínt að hafa systu hér, full plan alla daga, því miður þá eru frændsyskinin mjöööööööög dugleg að stríða hvert öðru og kvartanir á báða bóga eftir því. En þeim fannst samt rosalega gaman að sjá hvort annað og verðu ekki langt í að þau hittast aftur, og þá kannski með smá pásu inn á milli ;)

Hvað meir, við erum búin að skrifa undir kaupsamning á húsinu sem okkur langaði í, íhaaaa..
Bílastæði, tjekk.
Beinn aðgangur í garð, tjekk.
Sól í garðinum, tjekk.
Bílskúr, tjekk.
Sofum öll á sömu hæðinni, tjekk.
Búum enn í sama hverfi, tjekk.
Jebbs þetta verður lúxus!


Ps. Írena eeeeeeeelskar að vera prinsessa!

Posted by Picasa

|

föstudagur, júní 24, 2011

 

Tölvan komin í lag ..

.. en ég er að fara til Danmerkur á eftir og því verðið þið að vera þolinmóð eftir myndum. Annars er þetta allt að komast í stand hjá mér. Ég er búin að gera fullt af leiðinlegum hlutum sem hafa beðið lon og don eftir því að ég gerði þá. Þannig nú get ég farið að gera eitthvað skemmtilegt eins og að gera myndaalbúm, taka á móti systu og kó o.fl. skemmtilegt.
En ég er að fara í brúðkaup í kvöld og því er best að byrja taka sig til.

Þar til seinna..

|

laugardagur, júní 18, 2011

 

Tölvuleysi

Vildi bara láta ykkur vita að tölvan mín er enn biluð og því engar myndir í bili...

Heldum upp á þjóðhátíðardaginn í týpisku þjóðhátíðarveðri, vindur, rignin og kuldi. Byrjuðum á því að hlaupa öll saman í kvennahlaupinu og svo var grillað, sungið og leikið sér.

Alfreð er eitthvað súr núna og því læt ég þetta gott heita.

|

miðvikudagur, júní 08, 2011

 

Í útlegð..

Hellu

Eitthvað verður þetta nú fátæklegt blogg þar sem engar myndir eru í boði. En windows tók upp á því að neita að hleypa mér í hana, þ.e. eigandann. Vill svo til að ég er líka með aðgang fyrir gesti en get ekki gert neitt nema með leyfi eigandans og ég er farin í útlegð að "þeirra" mati. Er að bíða eftir að tölvugúru muni hjálpa mér.

Annars er það að frétta að enn er ekki komið á hreint með húskaup, en eins og alltaf þá kemur þetta í ljós á næstu dögum...

Ásta er að fara heim 5.júlí. Það verður stór missir! Við erum enn ekki búin að ákveða hvort við fáum okkur aðra Au-pair, en Alfreð fer á dagheimili 3x í viku í október. Mér fannst hann bara allt of ungur til að fara heila viku, en tel þetta sé fínt. Ég held þó að Timme muni vilja fá aðra, þetta er notturulega rosalega þægilegt að geta skotist aðeins út, ég get nú ekki neitað því.

En þar sem engar myndir eru og ég að fara í lokapróf í frönsku á morgun mun ég láta þetta gott heita í bili

Knús á línuna

|

miðvikudagur, júní 01, 2011

 

4ra ára drottning

Írena Mjöll átti afmæli núna á sunnudag og bökuðum við skúffuköku og pönnukökur af tilefni dagsins, eftir hádegi sýndi Írena í balletsýningu sem endaði þannig að hún varði deginum þar í staðinn fyrir að halda veislu síðar um daginn. En það er ekki spyrja af því, Írena var hæst ánægð með daginn sinn og heldum við veisluna bara daginn eftir. En svo í leikskólanum birtumst við Timme með skúffukökuna og kerti og var Írena svo stolt og ánægð að það var engu lagi líkt.

Af okkur er bara allt gott að frétta, enn ekki komið endanlega í ljós með húsið en það mun þó gerast á næstu dögum. Við hittum eigandann í gærkvöldi og átti þeir í samningviðræðum Timme og hann. Nú krossum við bara fingur. Ég hef tekið framförum í frönsku enda verið að hitta danska kunningjakonu til þess eins að tala frönskuna, ekki það að mig vantar helling af orðum en þetta kemur allt. Einnig mæti ég alltaf reglulega í sjálfboðavinnuna og mun ég líklegast vera ein næst. Ætti svo sem ekki að vera mikið mál, þó skemmtilegra sé að hafa kollega til að spjalla við, á frönsku auðvitað ;)



Við Timme erum að fara til Danmerkur um helgina án barna, en systir hans gfti sig víst fyrir 2 vikum og verður "ástarpartý" haldið núna á laugardag. Ásta au-pair mun því vera ein með börnin yfir nóttu. Efast ekki um að það muni ganga stórvel hjá henni. En ég vil þó benda á að ég hef einnig tekið miklum framförum í dönskunni og skil ágætlega þegar hópur er að tala saman og á auðvelt með að komast inn í samræður.. Stórt prik fyrir mig!!!


Alfreð dafnar bara og vex, hann er byrjaður að borða ca. 4 sinnum á dag, hann er þó frekar ólunkinn við að koma matnum aftur í munninn og kyngja og því er þetta talsvert sullerí. En honum finnst maturinn góður, borðar ávexti og grænmeti og hafragraut á morgnannna. Er hann líka að borða/drekka sjaldnar núna eða bara samtals 5x á dag. En hann fær einnig mjólk eftir hverja máltíð þó bara í miklu minna mæli.

En ætli ég láti þetta ekki bara duga í bili.. knús í hús

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com
Munið að Karíus og Baktus skemma tennurnar elskurnar mínar!